Tilgangur þessarar síðu er að birta ljósmyndir af sem flestum útileguhellum, -fylgsnum, -skjólum og tröllabólum sem sagnir greina frá, vitað er um og eru nafngreindir. Staðreynd er að stundum fennir yfir staðsetningar og þær vilja gleymast og hverfa með gengnum kynslóðum. Þannig verða hellar, staðsetningar þeirra og örnefni nánast að þjóðsögum. Því er tilvalið að mynda þá og finna sem flesta og þannig staðfesta tilvist þeirra fyrir nútíð og framtíð og skjóta stoðum undir sannleiksgildi þjóðsagna eftir því sem við á. Ekki verða tíundaðar sögurnar á bakvið þessa hella. Hinsvegar eru allir hvattir til að kynna sér þær ef áhugi er fyrir hendi.
Oft er svo að örnefni skolast til, staðsetningar breytast og geta færst á milli náttúrumyndana í gegnum tíðina. Hér verður því af og til bryddað upp á fleiri möguleikum um staðsetningar hella þó almennt sé búið að viðurkenna eina ákveðna staðsetningu hvort sem hún er raunhæf og rétt eða ekki. Í þeim tilfellum eru þeir nefndir t.d. "Hellir" II eða "Hellir" III eftir sem við á. Þetta eru þá tillögur að öðrum staðsetningum viðkomandi hella undir ákveðnu nafni án þess að neinar fullyrðingar fylgi þeim. Eins er hér sumsstaðar að finna tillögur að hellum sem gætu verið markverðir og er þá haft spurningamerki á eftir heiti.
Þeir hellar sem hér eru þurfa þó ekki endilega að hafa verið skjól útilegumanna heldur er stundum um að ræða almenna bústaði, skjól gangnamanna eða jafnvel fjárskjól eða forðabúr. Fjarri fer að listinn hér sé tæmandi og verður sífellt bætt við hann eftir efnum og ástæðum.